Jæja þá erum við búinn að vera í Sierra Leone í að verða viku og hefur mér bara orðið kalt einu sinni og það var í morgun ,sólin bjargaði því þó og var kominn 35 stiga hiti klukkustund síðar
Hér er flest frekar ólíkt því sem maður á að kynnast en þetta er allt að venjast.
Við komum hér síðasta mánudag frá London í hrikalega flottri flugvél hún var skreytt með myndum af stjörnukerfinu að utan. Upplifunin hófst strax í fluginu þar sem við flugum yfir Sahara eyðimörkina og þar sem ég hef aldrei séð eyðimörk með eigin augum þótti mér þetta hrikalega mikilfenglegt.
Flugvöllurinn og ferðin til Kenema
Við lentum á þjóðarflugvelli Sierra Leone um hálf fimm síðdegis og við okkur tók 40 stiga hiti og brennheit sól um leið og leið og við komum inn í flugvallarbygginguna þá þurftum við að fylla út eyðublað með öllum helstu persónu upplýsingum og ástæðu þess að við værum að heimsækja landið. Þessu þurfti svo að skila inn í vegabréfseftirlitinu en þar voru tekin fingraför hjá okkur lika og andlitsmynd allt til þess að fá stimpill inn í landið. Að vísu þurfti pabbi líka að borga 10 us dollara til að fá sinn stimpil. Næst tók við að ná í töskurnar sem gekk vel nema mamma varð hrædd við alla ungu mennina sem voru að bjóða ýmislegt til sölu þar sem það hafði verið varað við þeim við okkur. Þegar töskurnar voru fundnar þá þurftum við að fara í gegnum tollinn sem var meira svona gangur merktur A4 blöðum Customs þar átti að láta okkur sýna ofan í töskurnar en þá hvíslaði maðurinn sem lét pabba borga fyrr eitthverju að tollverðinum svo við sluppum við það. Næst tók við bátsferð yfir flóan til Freetown (flugvöllurinn er hinumegin við flóann).Það var mjög freskandi að fara í bátinn eftir allan hitann á flugvellinum. Þetta var pínu lítill bátur sem var troðfullur af fólki og farangri og einhver maður sem hefur verið þarna áður sagði okkur að svona bátur hafði sokkið nýlega mjög hughreystandi að heyra.
Þegar við komum til Freetown tók Henrietta sem við munum búa hjá á móti okkur ásamt dóttur sinni og fylgdi hún okkur á Guesthouseið okkar þar sem okkar beið matur og enn meiri hiti.
Morguninn eftir þá lögðum við af stað í leigubíl til Kenema þar sem við munum búa næstu 2 mánuði og er hinu megin í landinu við Freetown og rúmur 6 tíma akstur. Bílinn var lítll fólksbíll og það var ekki hægt að loka skottinu út af farangri og það þurfti að púsla okkur inn í bílinn til þess að geta komið öllu með.
Á leiðinni sáum við margt forvitnilegt m.a hermann stýra umferð með pálmagreinum, mútanir til að komast í gegnum vegatálma og rosalega mikið af trjám og svo stundaði Henrietta viðskipti í gegnum bílglugga m.a verslaði hún fugl í matinn vitum ekki alveg hverskonar samt en hann var mjög góður. Fyrir þennan leigubíl greiddi pabbi 500.000 leones eða 15000 íslenskar.
Kenema og húsið okkar
Við búum í frekar stóru húsi og hér búa 4 manneskjur fyrir utan okkur. Það er Henrietta sem er einskonar ráðskona og rekur skóla fyrir einstæðar mæður í húsinu. Svo er það Jeneba sem eldar fyrir okkur og um eins árs dóttir hennar Watta hún fílar okkur ekki enn og grætur þegar hún sér okkur og svo Hassan sem hjálpar við ýmislegt eins og fara að versla og þess háttar okkur skilst að hann hafi verið hérna þegar Henrietta flutti inn svo hún leyfði honum að vera. Svo er það sérvisku kötturinn Mimi og svo bjuggu hér 2 hressar hænur þegar við komum.
Fólk hér í Kenema er mjög vinalegt og er að það siður að heilsa fólki með því að spyrja hvernig það hafi það. Svo eru mjög margir sem hafa sjaldan séð hvítt fólk og stelst til að snerta okkur í laumi bæði börn og fullorðnir. Börnin gera það að vísu ekki laumulega heldur gefa manni five eða hlaupa í fangið hjá pabba þá sérstaklega lítil stelpa sem býr hér út á horni sem kemur hlaupandi á móti pabba í hvert skipti þegar við komum framhjá. Einng kalla krakkar oft á eftir okkur "puntje" og hlægja. Puntje þýðir semsagt hvítingi.
Matur og húsverk
Það hefur verið svolítið erfitt að venjast því að þurfa ekki að gera
nein húsverk eða sinna eldamennsku þar sem við erum með fólk vinnu við að gera
þessa hluti fyrir okkur og ef við gerum þá þð erum við að taka vinnu frá þeim.
Flest sem við höfum borðað og drukkið hér hefur verið mjög gott. Venjulegur
morgunmatur hér er annað hvort brauðbollur með ýmist hnetusmjöri rjómaost eða sardínum á ( en sardínur eru eitt af fáu
sem ég get ekki borðað.svo ég sleppi þeim) eða eggjakaka og steiktir bananar í
pylsubrauði. Í hádegis og kvöldmat er svo mjög algengt að borða grænmetið yam (sem
er eins og blanda af sætri og venjulegri kartöflu) með ýmiskonar sósu. Það eru
víst til 3 tegundir af yami
,kínverskt,coco og venjulegt og það er víst munur á þeim sem við finnum
því miður ekki pabbi heldur að þetta sé aðeins minni munur en á gullauga og rauðum kartöflum,Henriettu þótti mjög undarlegt þegar mamma stakk upp á
piparsúpu með kínversku yami þannig súpa passar víst bara með venjulegu yami svo það væri svolítil áhætta að prófa það.Þetta er flókið
mál sko.Svo erum við búinn að smakka ýmiskonar kjöt m.a fuglinn sem keyptur
var á leiðinni til Kenema og aðra hænuna sem var hér þegar við komum. Henrietta
varð pirruð á henni svo hún drap hana og át. Basic.Hún var frekar seig og skrýtin á bragðið svo kötturinn og hin hænan fengu afganginn.
Við fengum þær upplýsingar áður en við komum að það væri ekki
mögulegt að fá neitt kalt að drekka eða yfirhöfuð að finna eitthvað kalt í
Kenema en það kom í ljós að svo er ekki. Svo ég hef tekið miklu ástfóstri við kalt
sprite sem er selt hér úti á verslunargötunni, mér sjálfri til undrunar þar sem
það er drykkur sem mér þykir vondur. Einnig erum við óðum að venjast því að
nota rétt vatn fyrir rétt hluti. Sem sagt einn bala sem er til matargerðar,einn
til þvotta og svo auðvitað drykkjarvatn sem fæst bæði í flöskum og svo það sem
algengara er í hálfslítra pokum pínu spes að drekka vatn úr poka og alltaf
hálfan liter í einu því ef pokinn er opnaður þá er ekki hægt að geyma hann og svo er vatnið í þeim öruggara en í flöskum þar sem það er hægt að selja óhreint vatn í flöskunum og erum við pabbi búinn að brenna okkur á því og fá í magann en það er allt að lagast.
Svefnvenjur og rafmagn
Það er alls ekki stöðugt rafmagn hjá okkur sem er svo sem í lagi þar
sem það er ekki mikil þörf á því. Ástæðan fyrir þessu óstöðuga rafmagni er sú
að raflínurnar liggja first í gegnum Bo aðra stærstu borg landsins svo oftast
er ekki næg spenna eftir til þess að rafmagnið berist alla leið til okkar í Kenema.
En það sem fylgir rafmagnsleysinu er að fólk hér notar sólarljósið
sem er á milli 6 á morgnana til klukkan
7 á kvöldin sem þýðir að folk fer að sofa svona upp úr 9 á kvöldin og
þegar við sofum til klukkan hálf 8 á morgnana þá erum við að sofa mjög lengi
út. Svo það er nokkuð ljóst að sólarhringurinn verður allt annar hjá okkur
þegar við snúum til baka.
Gateway skólinn
Eins og ég sagði áður þá rekur Henrietta skóla hér í húsinu ætluðum einstæðum mæðrum sem vilja vera sjálfstæðari í lífinu. Sumar hafa misst mennina sína og sumir eiginmannana hafa farið frá þeim þegar þær urðu óléttar. Í skólanum læra þær bæði að reikna og skrifa og svo að sauma fatnað sem þær geta selt til þess að geta framfleytt fjölskyldu sinni. Flestar þeirra eiga nokkur börn alveg frá 1 árs upp í 9 ára samt eru þær allar undir þrítugu.
Samkvæmt Henriettu sem hefur verið einstæð móðir í 20 ár og kom öllum börnunum sínumm þremur í háskóla, þá vill hún kenna konunum að þær þurfa ekki eiginmann til þess að vegna vel í lífinu.
Henrietta er einstaklega mögnuð kvenréttindakona og er maður orðlaus næstum á hverju kvöldi þegar hún er að segja okkur frá lífi sínu.
Hef þetta ekki lengra í bili þó svo að ég gæti skrifað heila bók í hvert skipti þarf líka að eiga eitthverjar sögur ósagðar þegar ég kem heim :)
Óska öllum góðra stunda úr hitanum
2 ummæli:
Hæ,
Ég heiti Hrönn, ég var með pabba þínum í skóla og sá þennan link hjá honum á FB.
Mig langar bara að segja þér að mér finnst þú segja skemmtilega frá og ég myndi alveg lesa fleiri sögur frá þér og ykkar ævintýri.
Ég vona að þið eigið eftir að læra margt og njóta ferðarinnar.
Kveðja,
Hrönn Ó.G.W
Gaman að lesa um ævintýri ykkar kæra frænka :) hlakka til að lesa meira kveðja til mömmu þinnar Kveðja Edda
Skrifa ummæli