miðvikudagur, 19. mars 2014

Glæpakvenndi, Íþróttir og ....


Nú er síðasta vikan okkar hér í Kenema að líða undir lok og erum við að fara  til Freetown  á föstudaginn. Það hefur verið frábært tækifæri að búa hér síðustu tvo mánuði og kynnast lífi og landi sem er svona ólíkt því sem maður hefur alist upp við. Það er líka skrýtið hvað margt hér er örðið svo eðlilegt að mér þykjji það ekki frásögu færandi þó svo að það sé sennilega  mjög áhugavert að segja frá og sumt sem ég hef ákveðið að geya að segja frá þar til heim er komið þar sem það er ekki hægt að segja frá því á “prenti”. En hér kemur samt síðasta bloggið um lífið hér í Kenema.

Handtaka og dómsmál

Á dögunum var móðir mín handtekinn og leidd fyrir dóm. Hvaða glæp framdi hún er spurt. Jú hún ferðaðist um hjálmlaus sem farþegi á mótorhjóli líkt og meiri hluti fólks hér gerir svo reif hún kjaft við lögguna. Eða meira svona benti lögregluþjóninum sem handtók hna að það væri frekar undarlegt að færa hana á lögreglustöðina á mótorhjóli með engan hjálm fyrir þann glæp að vera á mótorhjóli með engan hjálm. Löggur fíla það víst ekki að vera bent á mistök sín samkvæmt föður mínum lögreglumanninum sjálfum.

Mamma fékk leyfi til að hringja í mig og láta vita að hún hefði verið handtekin af því hún hafði verið á leiðinni að hitta mig. Frekar fyndið símtal að fá frá mömmu sinni. En ég mætti á lögreglustöðina fylgduliði af innfæddu fólki sem ruglaði lögguna aðeins, þar sem hvítt fólk á ekki að þekkja svona mikið af innfæddum hvað þá að búa með þeim.

Pabbi fékk svo fregnir af handtöku eiginkonu sinnar nokkru síðar frá þriðja aðila (sem er mjög algeng leið til þess að heyra fregnir hér).  Pabba fannst þetta grunsamlegt að heyra og hélt jafnvel að einhver væri að reyna ræna konunni sinni og væri þess vegna að tæla hann í burtu. Svo hann hringdi í mömmu þar sem ég svaraði og staðfesti handtöku móður minnar.

Í ljós kom eftir skýrslutöku að mamma yrði leidd fyrir dóm vegna brota sinna og var henna ekið þangað á mótorhjóli þó með hjálm í þetta skiptið.  Í dómnum þótti hún ósiðsamlega klædd enda hafði hún ekki gert ráð fyrir því að vera handtekinn hvað þá leidd fyrir dóm þegar hún klæddi sig.

Klæðnaðinum var þó bjargað með því að láta hana setja upp gríðarstórt hárnet. Við eigum því miður ekki mynd.

Hún var dæmd til þess að greiða 150 þúsund Leones eða mánaðarlaun meðal launþegi hér í sekt fyrir brot sín og minnt á það að vera með hjálm framvegis.

Nú er hún orðin þekkt sem hvíta glæpakvendið í Kenema og er stoppuð reglulega út á götu til þess að ræða handtökuna.

Landafræðikennsla og grunnskóli.

Síðustu vikur höfum við pabbi verið að kenna landafræði í ríkisgrunnskóla hér í Nyandeyama hverfinu þar sem við búum.

Krakkarnir sem eru í 3-6.bekk og á aldrinum 7-14 ára hafa flest ekki séð heimskort áður og þykjir því afar spennandi að læra um heiminn og koma með frábærar og krefjandi spurningar, eins og hver bjó til heiminn? Afhverju er fólk mismunandi á litinn? Hvað gerist inn flugvél? Hvað gerist í Ameríku? Hér er Ameríka land draumana og var ég svo “vond” að segja krökkunum frá því að Amerika væri ekki alveg eins og í kvikmyndunum sem þau hafa séð. Þá kom spurning frá einni: Afhverju eru þeir þá að búa til kvikmyndir ef það er ekki allt satt í þeim? Góð spurning.

Það sem mer þykir þó áhugaverðast við að koma inn í grunnskóla hér er að sjá hvað hann er ólíkur íslenskum skóla. Hér eru í kringum 90 börn í bekk  stelpur í meirihluta í yngri bekkjum. Skólastofurnar eru álíka stórar þeim íslensku en aðeins 20 borð semsagt um 4 börn við hvert borð og fæst eiga fleira en eina stílabók fyrir allar námsgreinar svo það þarf að nota plássið vel. Hér er páfagaukslærdómur notuð mikið og rím. Svo eru sumir kennarana ekki að fullu læsir. Að auki fer kennsla í skólum hér framm á ensku eða á að gera það. En enska er ekki móðurmál nemanda. Svolítið skrítið að ætlast til þess að barn taki mikið upp á tungumáli sem það talar ekki reiðbrennandi þess vegna stelast kennarar til þess að kenna á kríó svo börnin skilji.

Einnig brýtur það gegn barnasáttmálanum þar sem þar segjir  að börn eigi rétt á menntun á tungumáli sem það hefur góð völd á.

ÍÞRÓTTAVIÐBURÐIR

Spot event eða íþrótta viðburður er mjög vinsælt meðal fólks hér að mæta á. Sérstaklega hjá ungu kynslóðinni.

Á hverju ári heldur hver og enn skóli semagt stóran íþróttadag. Þar sem nemendur keppa sín á milli í liðakeppni og er skólanum skipt upp í 5 lið eftir litum. Íþróttagreinarnar eru fjölbreyttar t.d Boðhlaup, hástökk, nálarþræðingarboðhlaup og langstökk í öllum greinum er kept á sokkunum svo allir standi jafnt að vígi fótalega séð.

Keppnin stendur vanalega frá hádegi til sólseturs( kl 19) og er spiluð fimm laga mix kasetta undir allan tímann á fullum hljóðstyrk svo allt hverfið heyri. Oftast eru þetta lögin, All the ladys með fyrrnefndum texta,Moonlightshadow remix, To late to love, Feeling og I like to move it move it remix.

Því miður vitum við ekki hvar skólarnir finna allt þetta rafmagn, því ekki höfum við kynnst því.

Ég hef nú þegar mætt á  tvo íþróttaviðburði og leiddist jafn mikið í bæði skiptin. Mögulöga afþví að mér þykir leiðinlegt að horfa á flestar íþróttir og það voru engar íþróttir í gangi bara uppstillingar fyrir þær. Auk þess eru alltaf um 500 “áhorfendur” sem eru næstum allir á röltinu á sama tíma svo engine kemst  neitt áfram og enginn heyrir almennilega í hvorum öðrum vegna hárrar tónlistar.

Þó ætla ég í þriðja skiptið á morgun á viðburð hjá half ríkisrekna múslimamenntaskólanum í Kenema. Þar sem Mariama vinkona mín era ð fara keppa fyrir rauðaliðið og mun ég hvetja hana áfram að íslenskum sið og dansa fyrir hana að hennar ósk.

Gangs og T.C.M


Hér í Kenema er mjög mikið um klíkur og gengi. Það er mikil bárátta á milli gengja og innan þeirra um hverjir séu bestir og æðstir í kenema en flest gera almenningi mjög lítið. Í raun eru þetta bara vinahópar með heiti og sérmerkingar, klúbbkofa sem þau spila  mjög háa tónlist í og fara um alla borg til þess að graffa skammstöfun gengisins á veggi.
Sumar skammstafirnar eru net skondnar eins og t.d K.K.K , S.S og L.A.M.E

Okkur Hassan þykja þessi gengi jafn hallærisleg svo við ákvaðum að stofna okkar eigin. The cute mangos (T.C.M) meðlimir eru aðeins fjórir. Ég,Hassan, Watta og Mariama, Svo höfum við tvær vendar mæður mömmu og Henriettu. Pabbi bennti okkur á að við séum núþegar varasöm þarsem við erum alþjóðlegt gengi með glæpakvenndi sem verndara.
Svo passið ykkur meðlimur TCM er á leið til Íslands!      

 

15 hlutir sem ég hafði ekki séð,gert eða upplifað áður en við komum hingað.

 

1.      Vera andvaka fyrir klukkan 10 að kvöldi til.

2.      Sjá börn leika sér með sveðju úti á götu.

3.      Sjá 2 ára barn leika sér með þvottaefnispoka eitt úti á verönd.

4.      Sofa út til klukkan 8

5.      Geta ekki sturtað niður sjálf, afþví vatnstunnan er svo stór.

6.      Vera föst inni á klósetti í niðamyrkri með niðurgang  með kakkalakka, eðlu og vespu mmér til félagsskaps.

7.      Finna ekki klósettpappírinn vegna myrkurs

8.      Versla Klósettrúllur í stykkjatali

9.      Vera með einstakt hár sem margir vilja snetra

10.  Borða næstum hrísgrjón í hvert mál (hélt alltaf að gjrón væri Asíumatur)

11.  Vera voða hamingjusöm að það sé ekki sól

12.  Vera kalt í 25 stiga hita

13.  Eyða góðum tíma á hverju kvöldi að leita að vasaljósum til þess að geta leitað að betri vasaljósum.

14.  Geta aldrei verið alveg ein.

Og að lokum.

15.  Vera  með nokkuð eðlilegt litaval á fötum. Allt í lagi að vera í  fimmlitum fatnaði.

 

Hlakka til að koma til Íslands þann 12. Apríl
 
-Bláklukka

Engin ummæli: